fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
433Sport

Lengjudeildin: 8 marka leikur og 2 sjálfsmörk

Máni Snær Þorláksson
Föstudaginn 14. ágúst 2020 21:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einn leikur fór fram í Lengjudeild karla í dag en það var leikur Fram og ÍBV. 8 mörk voru skoruð í leiknum, þar af tvö sjálfsmörk.

Þegar um 11 mínútur voru liðnar af fyrri hálfleik skoraði leikmaður Fram, Hlynur Atli Magnússon, sjálfsmark og kom ÍBV því yfir. Um tíu mínútum síðar skoraði þó leikmaður ÍBV, Bjarni Ólafur Eiríksson, einnig sjálfsmark og jafnaði því leikinn. Tómas Bent Magnússon kom ÍBV síðan aftur yfir með marki á 36. mínútu en Þórir Guðjónsson jafnaði metin fyrir Fram rétt fyrir hlé.

Snemma í seinni háflleik náðu þeir Felix Örn Friðriksson og Gary Martin báðir að skora og komu því ÍBV í tveggja marka forystu. Á 59. mínútu gerði Fram þrefalda skiptingu sem átti eftir að reynast þeim vel en þeir Tryggvi Snær Geirsson og Aron Snær Ingason komu inn á í skiptingunni. Þeir skoruðu báðir mark, Tryggvi á 71. mínútu og Aron á lokamínútunum og endaði leikurinn með 4-4 jafntefli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

KFA staðfestir komur Þórðar Ingasonar

KFA staðfestir komur Þórðar Ingasonar
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Fylkir kaupir Sigurberg frá Stjörnunni

Fylkir kaupir Sigurberg frá Stjörnunni
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Eyðir hverri einustu mynd eftir að hafa verið fitusmánuð fyrir framan alþjóð – Unnusti hennar er heimsfrægur

Eyðir hverri einustu mynd eftir að hafa verið fitusmánuð fyrir framan alþjóð – Unnusti hennar er heimsfrægur
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Leikmenn Coventry steinhissa á því hversu lélegur þessi leikmaður United var

Leikmenn Coventry steinhissa á því hversu lélegur þessi leikmaður United var
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Liverpool að hætta í Nike og fara líklega í Adidas – Fá þó ekki sömu kjör og United

Liverpool að hætta í Nike og fara líklega í Adidas – Fá þó ekki sömu kjör og United
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Arsenal tók Chelsea og slátraði þeim – Tylltu sér á toppinn

Arsenal tók Chelsea og slátraði þeim – Tylltu sér á toppinn
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Fer De Bruyne til Sádí Arabíu í sumar?

Fer De Bruyne til Sádí Arabíu í sumar?