fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
433Sport

Fyrrum leikmaður Breiðabliks kominn í samband með milljarðamæringi – Fetar í fótspor umdeilds Bretaprins og stórstjarna

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 5. ágúst 2020 14:51

Mynd af Carrallo: Blikar.is - Myndir af Stanbury: Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnumaðurinn Sergio Carrallo, sem lék með Breiðablik á Íslandi, er kominn á fast með milljarðamæringnum Caroline Stanbury. Stanbury hefur farið um víðan völl þegar kemur að mökum en hún hefur meðal annars slegið sér upp með kvikmyndastjörnum, kóngafólki og knattspyrnustjörnu.

Þau Sergio og Stanbyrt hafa verið afar dugleg við að deila myndum af hvoru öðru á Instagram-síðum sínum undanfarið. Af myndunum sem þau deila á samfélagsmiðlinum að dæma eru þau búin að vera að ferðast mikið á síðustu dögum. Þau virðast þessa stundina vera stödd í London á Englandi en áður hafa þau deilt myndum af sér í Saint-Tropez á Frakklandi og í Las Vegas í Bandaríkjunum.

https://www.instagram.com/p/CDeyJZmnGWD/

Stanbury er afar efnuð en hún er metin á 30 milljónir bandaríkjadala, það eru um 4 milljarðar í íslenskum krónum. Hún er hvað þekktust fyrir að vera stjarnan í raunveruleikaþættinum Ladies of London sem sýndur var í Bandaríkjunum. Hún skildi nýverið við fjárfestinn Cem Habib sem er einnig metinn á tugi milljóna bandaríkjadala.

Stanbury segir að hún og Habib hafi skilið í góðu og að hún vonist til þess að þau verði afar góðir vinir áfram. „Ég veit að þetta hljómar klisjukennt en við vorum bara að stefna í sitt hvora áttina. Við höfðum ekki gaman að sömu hlutum og við fórum ekki einu sinni í frí saman lengur,“ sagði Stanbury um skilnaðinn í samtali við Bravo. Stanbury og Habib eiga þrjú börn saman, dótturina Yasmine og tvíburana, Aaron og Zac.

https://www.instagram.com/p/B6gEuVMHLEI/

Bretaprins, knattspyrnugoðsögn og kvikmyndastjörnur

Eins og áður segir hefur Stanbury verið að rugla reitum með nokkrum stórstjörnum í gegnum tíðina. Stanbury var til að mynda að hitta knattspyrnugoðsögnina Ryan Giggs, sem spilaði með Manchester United. Þegar Giggs og Stanbury voru að hittast var Giggs á sama tíma í sambandi með Stacey Cooke, sem átti eftir að verða eiginkona Giggs, og síðar fyrrum eiginkona hans.

Þegar Stanbury vann við markaðssetningu kynntist hún kvikmyndastjörnunni Hugh Grant, sem leikið hefur í myndum á borð við About a Boy, Notting Hill og Love Actually. Stanbury og Grant áttu í leynilegu ástarsambandi í smá tíma. Grant er þó ekki eina kvikmyndastjarnan sem Stanbury er sögð hafa verið með en Sylvester Stallone, sem er hvað þekktastur fyrir Rocky myndirnar, er einnig nefndur sem fyrrverandi maki Stanbury í grein The Sun um hana.

Þá var Stanbury einnig í sambandi með Bretaprinsinum Andrew skömmu eftir skilnað prinsins. Stanbury og Bretaprinsinn fóru saman í veislu til Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseta og konu hanss, Hillary Clinton. Andrew hefur vakið mikla athygli undanfarið eftir að upp kom um skjöl sem tengdu hann við níðinginn Jeffrey Epstein. Andrew Bretaprins tjáði sig í löngu viðtali við BBC í fyrra um kynni sín af Epstein og ásakanir um að hann hafi haft mök við ungar stúlkur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Gylfi Þór hundfúll – „Það er erfitt að taka þessu“

Gylfi Þór hundfúll – „Það er erfitt að taka þessu“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Stjarnan hafði betur gegn Val – Bjarni Mark fékk heimskulegt rautt spjald

Stjarnan hafði betur gegn Val – Bjarni Mark fékk heimskulegt rautt spjald
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Tottenham vill fyrrum leikmann Arsenal

Tottenham vill fyrrum leikmann Arsenal
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Haaland tæpur fyrir bikarleikinn mikilvæga á morgun

Haaland tæpur fyrir bikarleikinn mikilvæga á morgun
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ten Hag útilokar það að Sancho spili fyrir sig aftur

Ten Hag útilokar það að Sancho spili fyrir sig aftur