„Ég elska hann. Ég held að hann sé sá besti í heiminum í dag,“ sagði Ferdinand um hollenska varnarmanninn Virgil Van Dijk, sem spilar með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. „Hann er án efa magnaður leikmaður en ég held samt að hann sé ekki að fást við sömu verkefni og ég gerði þegar ég spilaði,“ sagði Ferdinand og útskýrði að þegar hann var að spila var það algengara að lið væru með tvo sóknarmenn. Í dag er það hins vegar algengara að lið séu með einn sóknarmann og tvo menn á köntunum.
„Hann hefði samt verið magnaður leikmaður á hvaða tímabili sem er. Ég væri til í að sjá hann spila á móti tveimur sóknarmönnum eins og ég gerði. Ég held að hann myndi samt ráða við það.
Í þættinum valdi Ferdinand fimm bestu varnarmenn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Ásamt Van Dijk valdi hann Nemanja Vidic, sem lék með Ferdinand hjá Manchester United, Vincent Kompany, sem spilaði með Manchester City, John Terry, fyrrum fyrirliða Chelsea og enska landsliðsins, og Sol Campbell sem spilaði meðal annars með Tottenham og Arsenal.