Santi Cazorla, leikmaður Villarreal, hefur fengið símtöl frá Arsenal vegna liðsfélaga hans, Pau Torres og Samuel Chukwueze.
Báðir leikmennirnir eru orðaðir við stærri félög en Cazorla þekkir vel til Arsenal og var þar í mörg ár.
Hann vill ekki sjá tvímenningana færa sig um set strax og vonar að þeir verði lengur hjá Gula Kafbátnum.
,,Já ég hef verið spurður út í þá, aðallega af vinum,“ sagði Cazorla við Marca.
,,Þeir spyrja mig út í þá og hvort að þeir séu með það sem til þarf að taka skrefið í ensku úrvalsdeildina.“
,,Það er frábært að góð lið hafi áhuga á ungum leikmönnum Villarreal en í dag þá segi ég þeim að láta þá vera.“