ÍA mistókst að fylgja á eftir frábærum sigri á Val í síðustu umferð gegn HK á Akranesi í kvöld.
ÍA fékk HK í heimsókn á Skagann og komst tvisvar yfir í viðureigninni.
Í bæði skiptin náðu HK-ingar hins vegar að svara og urðu lokatölur 2-2 í annars nokkuð skemmtilegum leik.
Á sama tíma áttust við Fjölnir og Grótta og þar fengu áhorfendur ansi óvænt úrslit.
Grótta vann 0-3 útisigur á Fjölni og var a ð vinna sinn fyrsta sigur í deildinni þetta sumarið.
ÍA 2-2 HK
1-0 Óttar Bjarni Guðmundsson (33′)
1-1 Valgeir Valgeirsson (43′)
2-1 Tryggvi Hrafn Haraldsson (66′)
2-2 Atli Arnarson (víti, 78′)
Fjölnir 0-3 Grótta
0-1 Karl Friðleifur Gunnarsson (59′)
0-2 Halldór Kristján Baldursson (68′)
0-3 Pétur Theódór Árnason (76′)