Sölvi Geir Ottesen hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann í úrvalsdeild karla.
Þetta var staðfest í kvöld en Sölvi fékk beint rautt spjald gegn KR í leik helgarinnar.
Pablo Punyed ýtti í bakið á Sölva sem fór með hendina í leikmann KR af töluverðu afli.
Í kjölfarið öskraði Sölvi á fjórða dómara leiksins og kallaði hann aumingja á hliðarlínunni.
Félagar Sölva, Kári Árnason og Halldór Smári Sigurðsson fengu báðir eins leiks bann.