Arsenal ætlar að losa sig við miðjumanninn Matteo Guendouzi í sumar samkvæmt heimildum David Ornstein.
Ornstein er einn virtasti blaðamaður Bretlands en hann starfar fyrir BBC Sport.
Guendouzi hefur ekki spilað með Arsenal undanfarið og hefur þá æft einn eftir atvik sem kom upp gegn Brighton.
Frakkinn sást þar taka Neal Maupay, leikmann Brighton, hálstaki eftir lokaflautið.
Búist er við að Guendouzi spili ekki fleiri leiki fyrir Arsenal á þessari leiktíð.