Sölvi Geir Ottesen, leikmaður Víkings R, fékk að líta beint rautt spjald í leik gegn KR í kvöld.
KR vann 2-0 heimasigur á Víkingum þar sem þrír leikmenn gestanna fengu að líta beint rautt spjald.
Fyrst var Kári Árnason rekinn af velli og þeir Halldór Smári Sigurðsson og Sölvi fylgdu í seinni hálfleik.
Spjald Sölva var heldur ósanngjarnt en Pablo Punyed ýtti í bakið á varnarmanninum sem fór með hendina í andlit leikmanns KR.
Helgi Mikael, dómari, virtist viss í sinni sök og gaf Sölva beint rautt spjald.
Þá slær hann síðan bara.
Þetta er glórulaust hjá Sölva!
Nei vinur, glórulaust að sjá þetta ekki.
Pablo ýtir Sölva á liðsfélaga sinn og Sölvi fær rautt fyrir vikið. pic.twitter.com/0i7aqeLtsK
— Albert Ingason. (@Snjalli) July 4, 2020