Ole Gunnar Solskjær gefur engan afslátt í viðtali við stuðningsmannavef félagsins og segist ekki hafa áhuga á að hafa rasshausa í sínum hópi.
Margir túlka orð Solskjær á þann hátt að hann sé að tala um leikmenn em félagið losaði sig við síðasta sumar, Romelu Lukaku, Alexis Sanchez og fleiri.
„Ég vil frekar hafa holu í hóp okkar frekar en að hafa rasshaus í honum, persónuleiki er svo mikilvægur. Við erum í liðsíþrótt,“ sagði Solskjær.
„Þú vilt leikmenn með sjálfstraust og kraft en þeir verða að geta aðlagast. Í mars 2019 þá voru leikmenn andlega þreyttir, líkamlega þreyttir og það voru meiðsli. Það voru neikvæðar hugsanir í hópnum en í dag eru þær jákvæðar.“
„Það voru hlutir sem ég kunni illa við, persónulegt viðhorf leikmanna sem ekki var hægt að leysa fyrr en um sumarið. Það verða alltaf leikmenn sem vilja spila meira, ef liðið á að ná árangri þá verða leikmenn að vera klárir á mismunandi augnablikum.“
Þrátt fyrir sögur í kringum Paul Pogba og fleiri er Solskjær sáttur í dag. „Það er ekki eitt skemmt epli í hópnum í dag.“