Heimskur, heimskari, heimskastur á ágætlega við Serge Aurier bakvörð Tottenham í enska boltanum. Hann hefur í þrígang brotið reglur um útgöngubann og þau bönn sem eru vegna kórónuveirunnar í Bretlandi.
Aurier birti mynd af sér í gær í klippingu, eitthvað sem er bannað í Bretlandi vegna veirunnar.
,,Málið er til rannsóknar hjá málinu og við munum leysa þetta innan okkar raða,“ sagði talsmaður Tottenham.
Ensk blöð segja að Tottenham ætli að sekta Aurier um 140 þúsund pund, tveggja vikna laun hans. Um er að ræða 24 milljónir íslenskra króna.
Aurier hafði í tvígang brotið reglur um útgöngubann með því að hitta fólk og birti mynd af því þegar hann fór að hlaupa með Moussa Sissoko liðsfélaga sínum.