Knattspyrnufélög hér á landi reyna nú að bjarga rekstri sínum með því að lækka laun leikmanna og þjálfara. Kórónuveiran hefur ýtt þessu af stað.
Félögin hafa mörg hver glímt við fjárhagsvandræði í lengri tíma. Veiran hefur svo bætt gráu ofan á svart.
Það vakti mikla athygli í upphafi árs þegar ársreikningur knattspyrnudeildar ÍA leit dagsins ljós, þar kom í ljós að deildin var rekinn með meira en 60 milljóna króna halla á síðustu leiktíð.
Samantekt: Allar þær launalækkanir sem ráðist hefur verið í
Þetta mikla tap vakti gríðarlega athygli en Skagamenn gátu aðeins greitt helming launa um síðustu mánaðamót. Þetta og fleira var til umræðu á Stöð2 Sport í fyrradag.
„Ef við tölum um peningana. Þetta voru ekki þrjár eða fjórar milljónir. Þetta voru rúmar sextíu milljónir rúmar. Maður veltir því bara fyrir sér: hvernig getur þetta gerst?,“ sagði Hjörvar Hafliðason á Stöð2 Sport.