fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
433Sport

Garðar hjólar í Kidda Jak af miklum krafti og sakar hann um að veita fréttamönnum afslátt í verslun sinni: „Kom ekki prump frá þeim“

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 28. mars 2020 21:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Garðar Örn Hinriksson, fyrrum knattspyrnudómari birtir áhugaverðan pistil á vefsvæði sínu í kvöld, þar hjólar hann af krafti í einn virtasta dómara í sögu Íslands, Kristinn Jakobsson. Garðar er ómyrkur í máli og sakar Kidda Jak um að veita blaðamönnum afslætti.

Garðar sakar Kristin um að veita fréttamönnum afslætti í kjöthúsi sem hann á og rekur, Garðar skrifar pistil sinn út frá leik sem fór fram árið 2014 þegar Stjarnan vann FH í úrslitaleik um sigur í Pepsi deildinni. Leikurinn var rifjaður upp á Stöð2 Sport á dögunum.

,,Einn frægasti leikur íslenskrar knattspyrnusögu fór fram í lokaumferð Íslandsmótsins í úrvalsdeild karla í lokaumferð keppnistímabilsins árið 2014. Þar áttust FH og Stjarnan við í hreinum úrslitaleik um hvort liðið myndi hampa Íslandsmeistaratitlinum í knattspyrnu. FH nægði jafntefli en Stjarnan þurfti á sigri að halda. Dómari leiksins var Kristinn Jakobsson. Honum til aðstoðar voru Sigurður Óli Þórleifsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson,“ skrifar Garðar á vef sínum.

,,Ástæðan fyrir því að ég skrifa um þennan leik er vegna viðtals sem var tekið við dómara leiksins, Kristinn Jakobsson, á dögunum þar sem hann fer sáttur frá borði. Það er svo sem ekkert skrýtið þar sem það er ekkert sett út á hann eftir leikinn. Ótrúlegt en satt! Nema kannski af FH-ingum og mér. Ótrúlegt en satt segi ég vegna þess að hann kemst upp með tvö af þremur risa atvikum í leiknum.“

Atvikin sem Garðar telur upp:
Atvik 1: Stjörnumenn komast yfir í leiknum undir lok seinni hálfleiks með marki Ólafs K. Finsen. Um var að ræða kolólöglegt mark en um rangstöðu var að ræða.

Atvik 2: Kristinn rekur réttilega Veigar Pál Gunnarsson af velli með rautt spjald fyrir að slá mótherja. Það hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta spjald en Kristinn tók ranga ákvörðun sem varð til þess að Veigar lét reka sig útaf.

Atvik 3: Kristinn dæmir víti á FH á lokamínútum leiksins þar sem Stjörnumenn skora úr vítinu. En var um víti að ræða? Nei!

Í rangstöðumarki Stjörnumanna klikkar Sigurður Óli illilega. Ólafur er langt fyrir innan vörn FH en rangstaðan fór framhjá honum. Skelfileg mistök og það veit Sigurður manna best. Sigurður, sem var frábær aðstoðardómari, gerði líklega sín stærstu mistök þarna á sínum knattspyrnudómaraferli og í versta leik sem hann gat hugsað sér að gera mistökin í – einum stærsta leik íslenskrar knattspyrnusögu. Ég get lofað þér lesandi góður að Sigurði hefur liðið skelfilega yfir þessu atviki og alveg örugglega átt erfitt með að sofna næstu nótt. Sérstaklega í ljósi þess að hann var gjörsamlega rifinn í tætlur af fjölmiðlamönnum og knattspyrnuáhugamönnum eftir leikinn og í raun er enn verið að rífa hann niður í dag, nokkrum árum síðar. Í viðtalinu sem var tekið við Kristinn á dögunum sagðist hann sjá eftir því að ekki hafi verið tekið eftir rangstöðunni. Ég held að þér þykir það ekkert leitt því rangstaðan bjargaði þér í rauninni frá öllu hinu.

Ef Kristinn hefði gert rétt í atvikinu þar sem Veigar Páll var rekinn af velli hefði Veigar klárað leikinn. Kassim Doumbia brýtur illa á Veigari beint fyrir framan Kristinn sem gerir ekkert. Við það pirrast Veigar og slær leikmann FH sem lét hann heyra það. Brot Kassim verðskuldaði rautt spjald þegar hann fór illa aftan í Veigar. Þar gerði Kristinn risa mistök. Það er hinsvegar hvergi minnst á þetta. Enginn talar um þetta sem er eitthvað sem ég hef aldrei skilið. Voru blaða- og fjölmiðlamenn svona ástfangnir af Kidda að þeir ákváðu að líta framhjá þessu atviki? Fengu þeir reglulega góðan afslátt af kjötinu hans Kidda að þeir ákváðu að líta framhjá þessu atviki? Sendir Kristinn þeim jólakort á hverju ári til að halda þeim góðum? Var einhver Kiddaklúbbur í gangi sem ég vissi ekki af þar sem blaða- og fjölmiðlamenn hittust og tilbáðu Kidda eins og um Guð væri að ræða? Ég skil þetta ekki. Ef þetta hefði verið ég hefði mér verið slátrað og úrbeinaður á staðnum! Svo í viðtali minnist Veigar hvergi á það að Kassim hefði átt að fjúka útaf. Samkvæmt Veigari var hann sjálfur í órétti, ekki Kassim. Ert þú Veigar líka á jólakortalista Kristins?

Vítið sem Stjarnan fékk á lokamínútunum átti aldrei að standa. Ég skil það þó miðað við staðsetningu Kristins að hann skuli hafa dæmt það. Það í raun kemur ekki í ljós fyrr en nokkrum dögum síðar að aldrei var um víti að ræða. Stuðningsmenn Stjörnunnar voru með myndavél stúkumegin sem sýndi að greinilega var aldrei um vítaspyrnu að ræða. Samt sem áður ákváðu blaða- og fjölmiðlamenn ekki að gera neitt mál úr því. Kristinn segist samt standa við vítið og hefði VAR ekki hjálpað honum neitt því hann hefði alltaf fylgt sinni sannfæringu. Ertu að segja mér það að ef VAR hefði sýnt þér fram á það að ekki var um víti að ræða, hefðir þú hunsað það? Það er fáránlegt því það var svo greinilegt að ekki var um víti að ræða.

Sakar Kristin um að beita blaðamönnum afslátt:
,,Líklegast hefur þú hækkað afsláttinn á kjötinu strax eftir leikinn til blaða- og fjölmiðlamanna og því kom ekki minnsta prump frá þeim varðandi þetta. „

,,Eftir leikinn missti Kassim Doumbia haus og virtist ætla að ráðast á Kristinn eftir leikinn. Ég hef aldrei á ævinni orðið vitni af öðru eins hjá leikmanni eins og hjá Kassim í þessu tilfelli. Kassim var sár vegna þess að hann vissi að þetta var aldrei víti. Þetta hefði átt að kveikja á einhverjum ljósum hjá Kidda. Hversvegna var Kassim svona reiður? Hversvegna froðufelldi Kassim af reiði eftir leikinn? Það var hræðilegt að sjá Kassim sem lét eins og einhver hefði myrt einhvern náinn honum.“

,,Hvað gerist svo eftir leikinn? Sigurður er settur í tætarann og Kristinn sleppur. Það er hvergi minnst á mistök Kristins neinsstaðar…. Ekki nema vítið af FH-ingum sem voru kallaðir grenjuskjóður fyrir að kvarta yfir vítinu. FH-ingar áttu allan rétt á að kvarta yfir vítinu sem var bull og vitleysa. Ef það er einhver sekur eftir þennan leik er það Kristinn Jakobsson. Það má hinsvegar ekki minnast á það í viðkvæm eyru blaða- og fjölmiðlamanna sem sáu ekki sólina fyrir honum. Þannig var það allan hans feril. Það var aldrei minnst á hans mistök á meðan öðrum var slátrað. „

,,Sigurður átti þetta ekki skilið. Það sem hann á hinsvegar skilið er risastór afsökunarbeiðni frá blaða- og fjölmiðlamönnum þessa lands! Ég er með símanúmerið hjá honum ef ykkur vantar það!.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sárnaði að vera sökuð um að vera drusla í beinni útsendingu

Sárnaði að vera sökuð um að vera drusla í beinni útsendingu
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Arsenal fær óvæntar 350 milljónir í kassann

Arsenal fær óvæntar 350 milljónir í kassann
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Dóttir stjórans kemst í fréttirnar – Skiptir um kærasta en valdi samherja hans í landsliðinu

Dóttir stjórans kemst í fréttirnar – Skiptir um kærasta en valdi samherja hans í landsliðinu