Jadon Sancho, kantmaður Dortmund og enska landsliðsins fagnaði 20 ára afmæli sínu í gær. Hann þarf svo að taka stóra ákvörðun í sumar.
Sancho vill fara frá Dortmund þrátt fyrir frábæran tíma, hann vill taka stærra skref á ferli sínum.
Chelea, Manchester United og fleiri lið vilja fá hann og þar mun Sancho þéna meira en hjá Dortmund.
Mirror segir í dag að allt bendi til þess að Sancho fari til Manchester United í sumar.
Liverpool og Chelsea séu ekki klár í að borga 120 milljónir punda fyrir hann, Manchester United er hins vegar tilbúið til þess.