Paul Pogba verður brjálaður ef Manchester United framlengir samning hans. Félagið er með ákvæði til að framlengja samning hans um eitt ár. Ef United virkjar ekki ákvæðið á Pogba bara ár eftir af samningi sínum.
Samkvæmt AS á Spáni hefur Real Madrid látið Pogba vita að það sé nú eða aldrei að koma til félagsins.
AS segir að Real Madrid muni reyna að fá Pogba í sumar og er Mino Raiola, að vinna í því að fá það í gegn.
Pogba hefur viljað fara til Manchester United síðasta árið og vonast til að það gangi í gegn í sumar.
United gæti verið tilbúið að selja Pogba til að fjármagna kaup á Jadon Sancho og fleiri leikmönnum.