Raheem Sterling er í raun hataður af stuðningsmönnum Liverpool eftir að hafa yfirgefið félagið með látum.
Sterling yfirgaf Liverpool árið 2015 og sagðist vera að fara til að vinna titla, hann hefur safnað vel af þeim hjá Manchester City.
Sterling svaraði spurningum á Instagram í gær og ein af þeim var um það hvort hann myndi íhuga að fara aftur til Liverpool.
,,Færi ég aftur til Liverpool? Ef ég er heiðarlegur að þá get ég sagt ykkur að ég elska Liverpool,“ sagði Sterling en stuðningsmenn félagsins baula mikið á hann í hvert skipti sem hann mætir liðinu.
,,Liverpool er alltaf í mínu hjarta, félagið gerði mikið fyrir mig sem ungan dreng.“