Loris Karius, markvörður Liverpool, hefur spilað með liði Besiktas á þessu tímabili í láni.
Karius spilaði einnig þar á síðustu leiktíð en hann lék með Liverpool í úrslitum Meistaradeildarinnar árið 2018.
Þá gerði Karius sig sekan um tvö slæm mistök í 3-1 tapi og var sendur annað í lok tímabils.
Karius hefur undanfarið staðið sig illa í Tyrklandi og kennir hann flóðljósum vallarins um eigið form.
Fotosport í Tyrklandi greinir frá þessu en Karius verður víst ringlaður þegar hann sér ljósin að kvöldi til.