Mateo Kovacic, leikmaður Chelsea, segir að leikmenn Bayern Munchen komi ferskari til leiks í kvöld.
Chelsea spilar við Bayern í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en fyrri leikurinn er á Stamford Bridge.
Kovacic telur að þýska deildin sé ekki eins erfið og sú enska og að leikmenn Bayern séu ekki eins þreyttir og leikmenn Chelsea.
,,Þeir eru með frábært lið og eru að spila vel. Deildin þeirra er ekki jafn erfið og enska úrvalsdeildin,“ sagði Kovacic.
,,Það er alveg klárt að þeir verða meira hvíldir en við. Við erum að undirbúa okkur til að særa þá.“