Manchester United vann öruggan sigur á Tranmere Rovers í dag er liðin áttust við í enska bikarnum.
Leikið var á heimavelli Tranmere en það voru strákarnir frá Manchester sem höfðu betur örugglega.
United skoraði heil sex mörk gegn Tranmere en fimm af þeim komu í fyrri hálfleik.
Það hefur United ekki tekist að gera síðan 2001 er liðið vann öruggan 6-1 heimasigur á Arsenal.
Það eru 19 ár frá þeim sigri en United var með heldur sterkara lið á þeim tíma.