Jón Daði Böðvarsson lék tæpar tuttugu mínútur með Milwall er liðið féll úr leik í enska bikarnum í dag. Liðið tók á móti Sheffield United á heimavelli.
Jóhann Berg Guðmundsson er áfram frá vegna meiðsla hjá Burnley en liðið féll úr leik gegn Norwich á heimavelli, Josip Drmic og Grant Hanley skoruðu mörk gestanna.
Newcastle þarf að mæta Oxford aftur en liðin gerðu markalaust jafntefli, nokkuð óvænt úrslit. Reading og Cardiff skildu einnig jöfn.
Tottenham þarf að mæta Southampton aftur en Heung-Min Son, kom Spurs yfir á 58 mínútu en Sofiane Boufal jafnaði með glæsimarki. Þá vann West Brom sigur á West Ham þar sem Conor Townsend, skoraði eina markið.