Barcelona fékk á baukinn í La Liga í dag en liðið heimsótti þá Valencia í hörkuleik.
Jordi Alba varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net og Maxi Gomez bætti svo við marki fyrir heimamenn.
Quique Setien tók við starfi Barcelona á dögunum og er þetta skellur fyrir hann í upphafi starfsins.
Barcelona er áfram á toppnum með 43 stig en Real Madrid er með sama fjölda og á leik til góða.