Alfreð Finnbogason, framherji Augsburg snéri aftur eftir tveggja mánaða fjarveru. Framherjinn knái meiddist í landsleik í nóvember en hefur nú náð bata.
Alfreð meiddist þá á öxl en hefur unnið hörðum höndum að snúa aftur.
Augsburg heimsótti Union Berlin í dag en tapaði 0-3, Alfreð lék tæpar 15 mínútur en komst ekki á blað.
Augsburg situr í tólfta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar og er sex stigum frá fallsæti.