Quique Setien, stjóri Barcelona, var ekki ánægður með frammistöðu liðsins í gær gegn Ibiza.
Barcelona vann 2-1 sigur á Ibiza í spænska bikarnum en var lengi 1-0 undir gegn liði í þriðju deildinni.
,,Mér líkaði ekki við þetta lið. Ég hefði viljað sjá allt annað frá þeim,“ sagði Setien.
,,Á svona velli þá er þetta erfiðara. Þeir voru ákafir og létu finna fyrir sér í vörninni. Það var ekki auðvelt.“
,,Ég hefði viljað sjá okkur nýta stöðurnar betur og spila betur. Þegar hlutirnir ganga illa þá geturðu bætt þig.“