Marcus Rashford, leikmaður Manchester United. er staðráðinn í því að hjálpa liðinu að ná Meistaradeildarsæti.
Rashford er meiddur þessa stundina og verður frá í allt að þrjá mánuði vegna þess.
Það er áfall fyrir United en Rashford er einn mikilvægasti leikmaður liðsins og lék ekki í 0-2 tapi gegn Burnley í gær.
Hann hefur þó enn fulla trú á að topp fjórir sé möguleiki en United er sex stigum á eftir Chelsea að svo stöddu.
,,Takk fyrir. Ég verð kominn aftur áður en tímabilinu lýkur og vonandi get ég hjálpað liðinu að ná topp fjórum,“ skrifaði Rashford á Twitter í gær eftir batakveðjur frá úrvalsdeildinni.
Thanks guys, I’ll be back before the season ends to hopefully help my team claim top 4 👊🏾 https://t.co/JhTUi8yzLO
— Marcus Rashford (@MarcusRashford) 22 January 2020