Newcastle 1-0 Chelsea
1-0 Isaac Hayden(94′)
Newcastle vann mjög mikilvægan sigur í ensku úrvalsdeildinni í dag er liðið mætti Chelsea.
Það var dramatík á St. James’ Park í kvöld en sigurmark Newcastle kom á 94. mínútu í uppbótartíma.
Chelsea var sterkari aðilinn nánast allan leikinn og átti 19 markilraunir að marki heimamanna.
Eina markið gerði þó Isaac Hayden fyrir heimamenn með nánast síðustu spyrnu leiksins.
Newcastle lyfti sér upp í 12. sæti deildarinnar með sigrinum en Chelsea er enn í því fjórða.