Issa Diop, leikmaður West Ham, er sterklega orðaður við lið eins og Chelsea og Manchester United í dag.
Stórliðin eru sögð hafa áhuga á Diop í janúar en varnarmanninum er ‘drullusama’ um þessar sögusagnir.,
,,Það eru engar viðræður í gangi. Mér er alveg sama hvort lið hafi áhuga á mér. Ekkert hefur breyst,“ sagði Diop.
,,Yfirleitt eru það vinir mínir sem senda mér skjáskot af þessu, ég er ekki sá sem fær að heyra fyrst af þessu.“
,,Í alvöru, mér er drullusama um það sem er í blöðunum. Ég einbeiti mér ekkert að þessu og þetta kemur mér ekki við.“