Það styttist í það að tölvuleikurinn vinsæli FIFA verði gefinn út en ný útgáfa verður fáanleg í mánuðinum.
Þann 24. september verður hægt að kaupa sér leikinn og má búast við að margir Íslendingar geri það.
EA Sports sér um að gefa út leikinn og hefur nú birt lista yfir tíu bestu spilarana sem verður hægt að nota.
Cristiano Ronaldo er ekki lengur besti leikmaður leiksins en hann er annar á eftir Lionel Messi.
Messi er bestur í leiknum og þá fá tveir leikmenn Liverpool pláss á topp 10.
Hér má sjá þá bestu.
1) Lionel Messi: 94
2) Cristiano Ronaldo: 93
3) Neymar: 92
4) Eden Hazard: 91
5) Kevin de Bruyne: 91
6) Jan Oblak: 91
7) Virgil van Dijk: 90
8) Mohamed Salah: 90
9) Luka Modric: 90
10) Marc-Andre ter Stegen: 90