Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Íslands, segir að liðið hafi spilað illa í byrjun leiks við Moldóva í kvöld.
Gylfi og félagar unnu að lokum 3-0 sigur en hann var ekki sáttur með byrjunina á leiknum.
,,Það er öðruvísi að vera komnir aftur í 4-4-2, við vorum í basli í byrjun. Við vorum mjög slakir fyrstu 15 en náðum okkur að vinna inn í leikinn og vinna okkur úr vitleysunni sem við vorum í,“ sagði Gylfi.
,,Við erum betra lið en þeir voru miklu betri fyrstu 15 og hefðu getað skapað sér betri færi.“
,,Þeir voru betri í öllu og við vorum í vandræðum en við vorum rólegir og auðvitað hjálpar fyrsta markið. Það setur smá pressu á þá.“
,,Það er frábærlega gert hjá Jóni Daða sem leggur boltann á Kolbein sem getur klárað í fyrsta. Það er frábært fyrir hann að vera kominn aftur í liðið og skora mörk.“