Valur mun rifta samningi sínum við Emil Lyng, samkvæmt heimildum 433.is. Ekki náðist í Börk Edvardsson, formann knattspyrnudeildar við vinnslu fréttarinnar.
Lyng gekk í raðir Vals fyrir þetta tímabil en Valur getur rift samningi hans, það ákvæði verður nýtt.
Lyng fann ekki taktinn frekar en aðrir leikmenn Vals í sumar. Valur komst ekki í Evrópukeppni í ár og getur það með rift samningi Lyng.
Lyng lék með KA sumarið 2017 og skoraði þá 9 mörk. Hann kom til Vals frá Szombathelyi Haladás í Ungverjalandi.
Lyng lék 11 leiki með Val í deild og bikar í sumar og skoraði aðeins eitt mark.
Valur er að ráða Heimi Guðjónsson til starfa en talsverðar breytingar gætu orðið á leikmannahópi liðsins eftir slakt tímabil.