Real Madrid hefur áhuga á því að kaupa Raheem Sterling frá Manchester City, vinna við það er nú þegar farinn af stað.
Þannig segir The Athletic frá því að umboðsmaður Sterling hafi fundað með Real Madrid í sumar.
Real Madrid bauð honum á fund sinn í höfuðborg Spánar, þar var rætt um möguleg félagaskipti.
Sterling hefur verið magnaður í ensku úrvalsdeildinni eftir að City keypti hann frá Liverpool.
Sterling er sagður áhugasamur um það að taka skrefið til Spánar, þar sem sólin skín og eitt stærsta félag heims heillar líka.