Það er komið á hreint að Lionel Messi er besti leikmaður ársins 2019 en hann fékk þá nafnbót í kvöld.
Messi var valinn bestur á verðlaunaafhendingu FIFA en fyrirliðar landsliða og þjálfarar sáu um að kjósa.
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, setti Messi í annað sætið í sínu vali.
Að mati Arons þá var Virgil van Dijk bestur á árinu en hann vann Meistaradeildina með Liverpool.
Hollendingurinn var í fyrsta sæti hjá okkar fyrirliða, Messi í öðru sætinu og Cristiano Ronaldo í því þriðja.
Erik Hamren, landsliðsþjálfari, var á öðru máli en hann kaus Messi bestan, Van Dijk í annað sæti og Ronaldo í það þriðja.
Víðir Sigurðsson, blaðamaður Morgunblaðsins, var á sama máli og Aron og setti Van Dijk í fyrsta, Messi í annað og Ronaldo í þriðja.
Aron Einar:
1. Virgil van Dijk
2. Lionel Messi
3. Cristiano Ronaldo
Erik Hamren:
1. Lionel Messi
2. Virgil van Dijk
3. Cristiano Ronaldo
Víðir Sigurðsson:
1. Virgil van Dijk
2. Lionel Messi
3. Cristiano Ronaldo