Það hefur lítið gengið hjá liði Barcelona á leiktíðinni en liðið tapaði 2-0 gegn Granada um helgina.
Barcelona hóf tímabilið á 1-0 tapi gegn Athletic Bilbao og var alls ekki sannfærandi í þeim leik.
Eftir tap liðsins um helgina er ljóst að Börsungar hafa ekki byrjað eins illa í deild í 25 ár sem er mögnuð staðreynd.
Barcelona er aðeins með sjö stig eftir fyrstu fimm leikina sem gerðist síðast 1994/1995.
Það er ljóst að sæti Ernesto Valverde hjá félaginu er ansi heitt enda svona árangur ekki boðlegur á Nou Camp.
Spænskir fjölmiðlar kalla eftir aðgerðum eins og sjá má hér að neðan.