Manchester United tapaði öðrum leik sínum í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu í dag er liðið mætti West Ham.
United byrjaði tímabilið á 4-0 sigri á Chelsea en tókst ekki að vinna næstu þrjá leiki eftir þann sigur.
Liðið vann svo Leicester 1-0 í síðustu umferð en tapaði svo 2-0 gegn West Ham í London í dag.
Þeir Andriy Yarmolenko og Aaron Cresswell sáu um að skora mörk heimamanna í flottum sigri.
Leikmenn Crystal Palace munu þá fara ill að sofa í kvöld eftir leik við Wolves á heimavelli.
Leander Dendoncker skoraði sjálfsmark á 46. mínútu og kom Palace yfir og var staðan þannig lengi vel. Á 96. mínútu jafnaði Diogo Jota þó metin fyrir tíu menn Wolves og lokastaðan, 1-1.
West Ham 2-0 Manchester United
1-0 Andriy Yarmolenko(44′)
2-0 Aaron Cresswell(84′)
Crystal Palace 1-1 Wolves
1-0 Leander Dendoncker(sjálfsmark, 46′)
1-1 Diogo Jota(96′)