Lið Al-Arabi er að gera góða hluti í Katar þessa stundina en liðið hefur spilað fjóra deildarleiki á tímabilinu.
Heimir Hallgrímsson er þjálfari Al-Arabi en liðið spilaði við Al-Shahaniya í gær. Al-Arabi vann 2-1 heimasigur og er nú með tíu stig á toppi deildarinnar eftir þrjá sigra og eitt jafntefli.
Aron Einar Gunnarsson er á mála hjá Al-Arabi og spilaði hann 90 mínútur í sigrinum.
Það er hins vegar fyrsta mark leiksins sem allir tala um, það kom eftir 10 sekúndur en markvörður Al-Shahaniya gerði hræðileg mistök.
Regla er í Katar að markverðir verða að vera frá heimalandinu, þeir reyna að búa til markvörð fyrir HM 2022 en þeir eru margir mjög slakir
Markið má sjá hér að neðan.
Qatari goalkeeper's howler leads to goal after just 10 seconds https://t.co/vdMS2hRN8G pic.twitter.com/sUuYXkBE4p
— Guardian sport (@guardian_sport) September 20, 2019