Manchester United byrjar Evrópudeildina á sigri en liðið mætti FC Astana í fyrstu umferð í gær.
United var fyrir leikinn talið sigurstranglegra en Astana spilar í Kasakstan og er eitt besta liðið þar í landi.
Rúnar Már Sigurjónsson lék með Astana í gær og upplifði drauminn á Old Trafford en hann er stuðningsmaður United.
Rúnar fékk þó alls ekki að spila fyrir framan fullan völl en það var ansi tómlegt á Old Trafford.
Margir virðast ekki hafa verið spenntir fyrir viðureign gærdagsins sem United vann 1-0.
Hér má sjá myndir af því.