Rauði krossinn á Spáni þakkar David De Gea, markverði Manchester United fyrir sitt framlag í færslu á Twitter
De Gea lagði til 200 þúsund evrur eða tæpar 28 milljónir til að hjálpa við störf Rauða krossins. Sá hefur unnið þrekvirki á Alicante svæðinu undanfarið.
Rauði krossinn hefur hjálpað þúsund manna að komast frá heimili sínu eftir mikla rigninu og flóð. Sjö hafa látist í flóðinu sem hefur verið í bænum Dolores nálægt Alicante svæðinu.
De Gea var að gera nýjan samning við Manchester United þar sem hann ku þéna í kringum 400 þúsund evrur á viku. Hann lagði því 200 þúsund evrur til að hjálpa við starf Rauða krossins.