Anthony Gerrard leikmaður Chesterfield hefur beðist afsökunar, hann sagðist hafa stundað kynlíf með mömmu stuðningsmanns.
Anthony er frændi Steven Gerrard sem var goðsögn hjá Liverpool og enska landsliðinu, í dag er Steven stjóri Rangers.
Anthony er 33 ára gamall en hann kom til félagsins í sumar. Hann hafði spilað fyrstu sex leiki tímabilsins en missti svo af leik gegn Torquay um helgina.
,,Hver var aföskun þín um helgina, feiti?,“ skrifaði einn stuðningsmaður Chesterfield á Twitter til Gerrard um helgina.
,,Tognaði síðasta laugardag þegar ég var að dúndra mömmu þína. Vona að það útskýri málið,“ svaraði Gerrard.
Anthony hefur nú beðist afsökunar á þessum ummælum, hann kveðst sjá eftir þeim.