Stuðningsmenn Real Madrid eru að fá sig full sadda af markverðinum Thibaut Courtois.
Courtois hefur varið mark Real undanfarna mánuði en hann kom til félagsins frá Chelsea í fyrra.
Belginn hefur ekki þótt sannfærandi fyrir Real en stendur yfirleitt fyrir sínu með landsliði Belga.
Courtois hefur ekki haldið hreinu í marki Real síðan í febrúar sem er sturluð staðreynd.
Courtois hefur spilað 15 leiki án þess að halda hreinu en vörn liðsins hefur einnig verið mjög umdeild.