KR er Íslandsmeistari Pepsi Max-deildar karla árið 2019 en þetta varð ljóst eftir leiki kvöldsins.
KR mætti Íslandsmeisturum síðasta árs í Val og höfðu betur með einu marki gegn engu á Hlíðarenda.
Pálmi Rafn Pálmason sá um að tryggja þeim svarthvítu sigurinn en tvær umferðir eru eftir í mótinu sjálfu.
KR er með 46 stig á toppi deildarinnar en Breiðablik er í öðru sætinu með 37 eftir leik við Stjörnuna.
Þeim leik lauk með 1-1 jafntefli í Kópavogi og hefur Breiðablik tryggt sér Evrópusæti fyrir næstu leiktíð.
Til hamingju KR-ingar!
Valur 0-1 KR
0-1 Pálmi Rafn Pálmason(4′)
Breiðablik 1-1 Stjarnan
0-1 Jósef Kristinn Jósefsson(38′)
1-1 Höskuldur Gunnlaugsson(72′)