Mario Mandzukic er á förum frá Juventus en hann fær lítið að spila þessa dagana.
Fabio Paratici, stjórnarformaður Juventus, staðfesti það í dag að Mandzukic væri í viðræðum við lið í Katar.
Mandzukic var ekki valinn í Meistaradeildarhóp Juventus og var ekki í hóp gegn Fiorentina í dag.
Ónefnt lið í Katar er að tryggja sér þjónustu leikmannsins og eru viðræður í gangi þessa stundina.
Mandzukic er 33 ára gamall framherji en hann hefur reynst Juventus vel undanfarin ár.