Helgi Sigurðsson hefur ákveðið að hætta með lið Fylki í Pepsi Max-deild karla.
Þetta kom fram í tilkynningu félagsins í kvöld en Helgi hefur þjálfað liðið undanfarin þrjú ár.
Undir hans stjórn þá fór Fylkir aftur í efstu deild og hefur liðið haldið sér í deildinni undanfarin tvö sumur.
Gengið hefur ekki verið frábært þetta sumarið en Fylkir er með 25 stig í 9. sæti deildarinnar.
Tilkynningu Fylkis má sjá hér.