Íslenska karlalandsliðið spilar þessa stundina við lið Albaníu í undankeppni EM en leikið er ytra.
Það var verið að flauta fyrri hálfleikinn af en Albanía er með 1-0 forystu og er hún verðskulduð.
Íslenska liðið hefur alls ekki náð sér á strik í leiknum og fyrir utan eitt ágætis færi hefur lítið verið í spilunum.
Íslenska þjóðin horfir auðvitað á leikinn og hafði nóg að segja um þennna fyrri hálfleik.
Hér má sjá brot af því.
Þetta leikskipulag er drasl. #fotbolti #ALBISL
— Össi (@orninn77) 10 September 2019
Miðað við hárgreiðslu og magn brilliantíns Albana er ekkert langt síðan kvikmyndin Grease var frumsýnd í Albaníu #fyririsland #fotboltinet #ALBISL
— G. Orri Rósenkranz (@OrriRosenkranz) 10 September 2019
Afhverju er forseti Frakklands að auglýsa á búningum Albaníu? ?#albisl
— Guðfinnur Kr. Gíslason (@godfinds) 10 September 2019
Gott að sjá mikla endurnýjun í Ísl landsliðinu #albisl
— Björgvin Jónsson (@bjorgvin74) 10 September 2019
Þetta er ekki flókin íþrótt, bara Hamren í netið #albisl
— Gunnar nokkur (@gunnare) 10 September 2019
Ari Freyr kjötaður af boltanum. Bring on HM18. Og getum við komist upp með að nota tvo leikmenn án félags í leik á þessu leveli? #fotboltinet #albisl
— Guðmundur Jónsson (@gudmjons) 10 September 2019
Briliantínbirgðirnar í Tirana fóru allar í búningsherbergi Albana fyrir leik #albisl
— Arnbjorn Olafsson (@bjossi55) 10 September 2019
Þessi neikvæðni í þessum lýsanda er að fara með þetta hjá okkur. #albisl
— Styrmir Hansson (@showerysty) 10 September 2019
Jón Daði þarf að gera betur í að vinna skallabolta og halda boltanum. #albisl #fotboltinet
— Hafsteinn Árnason (@h_arnason) 10 September 2019
Færið hans Gylfa….
En út af með emil og runar i hálfleik…Kolla og albert inn #fotboltinet— Ragnar Vignir (@RV2303) 10 September 2019
Innköst Íslands hætt að virka fyrir löngu. Ísland vinnur ekki einn bolta í teig Albaníu. Þjálfarar, breytingar strax! #fotboltinet
— Halldór Halldórsson (@HalldorHall) 10 September 2019
Breytingar í hálfleik takk. Þurfum smá læti og hraða #fotboltinet
— Guðmundur Auðun (@GummiAudun) 10 September 2019
Þetta lá í loftinu, ekkert eðlilega dapurt #fotboltinet
— Guðmundur Auðun (@GummiAudun) 10 September 2019
Þessi 4–5-1 taktik er ekki að virka, hefur aldrei virkað og er aldrei að fara að virka #fotboltinet
— Magnus Andresson (@MagnusAndresson) 10 September 2019