Miðjumaðurinn Muhamed Besic er orðinn leikmaður Sheffield United – þetta var staðfest í kvöld.
Besic hefur undanfarið ár spilað með Middlesbrough en hann var þar í láni frá Everton.
Besic kom til Englands árið 2014 og á að baki 37 deildarleiki fyrir Everton.
Hann gerir lánssamning við Sheffield út tímabilið en liðið er nýkomið upp í úrvalsdeildina.
Um er að ræða 26 ára gamlan Bosníumann sem sinnir varnarsinnuðu hlutverki á miðjunni.