Fernando Torres hefur lagt skóna á hilluna eftir farsælan feril, hann lék sinn síðasta leik með Sagan Tosu í Japan í dag.
Bestu ár Torres hjá ferlinum voru hjá Liverpool en þar vann hann þó ekkert.
Torres fór þaðan til Chelsea og þar vann hann Meistaradeildina og Evrópudeildina. Torres lék svo lengi með uppeldisfélagi sínu, Atletico Madrid.
Torres vann EM tvisvar með Spáni og HM árið 2010. Hann gekk í raðir Sagan Tosu í fyrra en liðið tapaði gegn Vissel Kobe 1-6 í dag. Þar skoraði Andres Iniesta fyrir Kobe.