Aston Villa byrjar tímabilið á Englandi ansi erfiðlega en liðið hefur nú tapað fyrstu tveimur leikjum sínum.
Fyrsti leikurinn tapaðist 3-1 gegn Tottenham og tapaði liðið svo heima 2-1 gegn Bournemouth í dag.
Á miðju liðsins er hinn öflugi Jack Grealish en hann er jafnframt fyrirliði nýliðana.
Grealish lék með Villa í efstu deild áður en liðið féll úr úrvalsdeildinni tímabilið 2015-2016.
Hann hefur nú leikið 20 leiki í röð í úrvalsdeildinni og tapað þeim öllum sem er met. Það er þó ekki með met sem hann mun monta sig af!
Jack GreaLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLish makes Premier League history. ? pic.twitter.com/kBtBKVPJZe
— Squawka Football (@Squawka) 17 August 2019