Alfreð Finnbogason framherji Augsburg hefur framlengt samning sinn til 2022.
Framherjinn átti ár eftir af samningi sínum og var þetta kynnt nú í dag.
Samningurinn var kynntur með flottu myndbandi frá Íslandi þar sem Alfreð fór með fólk um landið.
,,Mitt land, mitt félag,“ skrifaði Alfreð þegar hann birti myndbandið á Twitter.
Alfreð hefur átt frábæru gengi að fagna hjá Augsburg en meiðsli hafa aðeins sett strik í reikning hans.
My country ?? – My club @FCAugsburg pic.twitter.com/Fr3BR2Z095
— Alfreð Finnbogason (@A_Finnbogason) August 15, 2019