Juventus á Ítalíu hefur loksins tryggt sér varnarmanninn Matthijs de Ligt frá hollenska félaginu Ajax.
De Ligt hefur verið orðaður við Juventus í margar vikur en hann var frábær fyrir Ajax á síðustu leiktíð.
De Ligt er aðeins 19 ára gamall en þrátt fyrir það á hann að baki 17 landsleiki fyrir Holland.
Juventus birti myndband á Twitter síðu sína í kvöld þar sem má sjá De Ligt staðfesta skiptin.
Mörg félög vildu fá De Ligt í sínar raðir en það tók Juventus dágóðan tíma að ná samkomulagi um kaupverð við Ajax.
Hann mun kosta Ítalíumeistarana í kringum 67 milljónir punda.
DELIGTED? ? pic.twitter.com/tcO2YPBAHN
— JuventusFC (@juventusfcen) 16 July 2019