Albert Brynjar Ingason, leikmaður Fjölnis, birti ansi skemmtilegt myndband á Twitter-síðu sína í kvöld.
Albert er þekktur fyrir það að grínast mikið á Twitter en um er að ræða saklaust og skemmtilegr grín.
Í nýjasta útspilinu þá hringir Albert í mömmu sína og setur hana ítrekað ‘on hold’ í miðju samtali.
Albert segist vera að hefna sín létt á móður sinni eftir símtal sem þau áttu fyrir einhverjum dögum síðan.
,,Mútta hringdi í mig í vikunni og var alltaf að setja mig óvart on hold þannig að það kom music hja okkur í símann og hún kenndi mér alltaf um,“ skrifar Albert.
,,Ég lofaði henni að ég væri saklaus, sem ég var. Þannig ég ákvað að hringja í hana núna og grilla í henni og setja hana stanslaust on hold.“
Móðir hans áttaði sig lítið á því sem var í gangi en Albert fékk hana til að trúa því að eitthvað væri bilað.
Sjón er sögu ríkari.
Mútta hringdi í mig í vikunni og var alltaf að setja mig óvart on hold þannig að það kom music hja okkur í símann og hún kenndi mér alltaf um
Ég lofaði henni að ég væri saklaus, sem ég var
Þannig ég ákvað að hringja í hana núna og grilla í henni og setja hana stanslaust on hold pic.twitter.com/02aA8LhktD
— Albert Ingason. (@Snjalli) 12 July 2019