Andri Yrkill Valsson, blaðamaður á Morgunblaðinu vandar Knattspyrnusambandi Íslands ekki kveðjurnar, í bakverði blaðsins í dag.
Þar heldur hann því að dómarar sem hafa litla reynslu séu í raun látnir taka út sín mistök, hjá stelpum frekar en strákum.
,,Eftir að hafa farið aðeins ofan í kjölinn á dómgæslunni í efstu deildum karla og kvenna í sumar fyrir þennan pistil get ég ekki annað en velt því fyrir mér hvort leikir í kvennadeildinni séu notaðir sem tilraunavettvangur um getu dómara,“ skrifar Andri í bakverði blaðsins í dag.
,,Í efstu deild karla eru búnir 56 leikir í sumar sem dæmdir hafa verið af 11 dómurum. Einn dæmdi sinn fyrsta leik í síðustu umferð, en annars hefur enginn dæmt færri en fjóra leiki í deildinni í sumar.“
Andri kafaði ofan í tölfræðina og sá muninn á reynslu dómara þar.
,,Í efstu deild kvenna eru búnir 35 leikir í sumar sem dæmdir hafa verið af 16 dómurum. Fimm þeirra hafa dæmt aðeins einn leik og aðrir fimm hafa dæmt tvo leiki. Í síðustu umferð gerðist það í fyrsta sinn að dómari sem hefur dæmt í efstu deild karla í sumar dæmdi í efstu deild kvenna.“
Hann segir KSÍ með þessu vera að bera óvirðingu fyrir konum, dómarar eigi frekar að gera mistök hjá stelpunum en strákunum.
,,Er þetta eitthvað annað en hrein óvirðing? Auðvitað þurfa dómarar að byrja einhvers staðar til þess að komast í fremstu röð og það tekur tíma að ná takti. En lítur KSÍ svo á að það sé betra að gera mistök í kvennaboltanum en karlaboltanum? Hver er ástæðan fyrir þessu?.“