Amr Warda, leikmaður Egyptalands hefur verið rekinn heim af Afríkumótinu. Ástæðan eru óviðeigandi skilaboð sem hann hefur verið að senda.
Hann hefur verið að senda mörgum konum dónaleg skilaboð í gegnum samfélagsmiðla, þau hafi nú farið í birtingu.
Warda var á meðal leikmanna Egyptalands í fyrsta leik en hefur nú verið sendur heim.
Warda leikur með PAOK í Grikklandi en þar er Sverrir Ingi Ingason, landsliðsmaður Íslands einnig.
Ward er 25 ára gamall en skilaboðin sem hann sendi eru sögð hafa verið ansi klúrin.