Diego Maradona, er ansi reiður í dag eftir að fréttir birtust um að hann væri með Alzheimer.
Maradona segir þetta af og frá en fréttir um þetta hafa birst síðustu daga.
Maradona lét af störfum sem þjálfari Dorados í Mexíkó á dögunum, það var ekki vegna Alzheimer, sem er tegund af heilabilun.
Maradona er að fara í aðgerð á hné og öxl og er öskureiður yfir fréttum um veikindin.
,,Þeir eru að ljúga, þeir ljúga. Þeir tala um Alzheimer en vita ekkert hvað það er,“ sagði Maradona.
,,Alzheimer er hræðilegt orð, þeir sem fá Alzheimer deyja. Ég er ekki að deyja, þeir eru að ljúga.“